We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Betra l​í​f

from Íslenska konan by Valur Heiðar

/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      €1.50 EUR  or more

     

lyrics

Úr heimabæ mínum held ég nú
það hjálpar að fara burt.
Efinn minn stóri, það ert þú
sem ætlar að verð‘ um kjurt.

Foreldrar mínir nú fella tár
og finnst þeir hafa misst
einkasoninn í hendur þeim
sem heiminn hafa kysst.

Ég er viss um að mín bíður betra líf
fjötra átthaganna alla af mér ríf
Alveg viss um að mín von er ekki hér
og frelsið mun mér fagna höndum tveim
Er fer ég burt, bara eitthvað, útí heim

Fyrst var fjarlægðin fjarska blá,
alltaf sól og hlýtt.
Byggðist samt upp í brjósti þrá
í brosið þitt svo blítt.

Ég reyndi allt sem mig ungan fýsti
og ég leitað‘ enn aldrei fann.
Gekk alveg út að ystu mörkum
en allur að innan brann

Ég var viss um að mín biði betra líf
Samt var bærinn okkar skjöldur minn og hlíf
nokkuð viss um að mín von var ekki þar
Og frelsið myndi fagna höndum tveim
Er fengi ég að sjá hinn stóra heim

Þó ég hafi farið víða,
frelsið ekki fundið samt.
Í brjósti mínu brenn af kvíða
því leitað hef ég of langt, yfir skammt.

Ég er viss um að mín bíður betra líf
Bara þegar ég í bæinn aftur svíf
Alveg viss um að þú brosir við mér þar
Og frelsið mun mér fagna höndum tveim
Er ferðalangur kemur aftur heim

Úr heimabæ mínum held ég nú
það hjálpar að fara burt.

credits

from Íslenska konan, released November 25, 2011
Vocal: Valur Heiðar Sævarsson
Piano: Stefán H. Henrýsson
Acoustic guitar: Þröstur Jóhannsson
Electric guitar: Davíð Þór Hlinason
Strings: Davíð Þór Hlinason

license

all rights reserved

tags

about

Valur Heiðar Reykjavík, Iceland

It's all about the music..
If I didn't have that..
well then the sky
would be gray

contact / help

Contact Valur Heiðar

Streaming and
Download help

Report this track or account

Valur Heiðar recommends:

If you like Valur Heiðar, you may also like: